
Fyrir næstu samsýningu EQA fyrir Festival of Quilts í Birmingham nú í ágúst þarf félagið að leggja fram níu verk í túrkis lit en aðrir litir mega ekki vera meira en 10% af heildarverkinu eins og sameiginlegar reglur kveða á um.
Þátttaka í þessu verkefni hefur verið frábær því í gær voru 11 verk sýnd á félagsfundi. Stjórn félagsins mun því skipa dómnefnd sem velur 9 verk fyrir samsýningunna. Lokaskilafrestur var hins vegar ekki auglýstur í upphafi en það er gert hér með! Þeir aðilar sem höfðu ekki tök á því að mæta með verk sitt á félagsfund eru hvattir til að hafa samband við Guðnýju Benediktsdóttur og koma verki sínu til hennar fyrir 15 maí næstkomandi. Niðurstöður dómnefndar verða birtar á síðunni við fyrsta tækifæri.
Recent Comments