Kæru félagsmenn,
Nú fer að styttast í langþráð augnablik þegar ný heimasíða Íslenska bútasaumsfélagsins lítur dagsins ljós. Félagið hefur fengið til liðs við sig ungan margmiðlunarhönnuð sem er að útbúa fyrir okkur síðu. Síðan sem hefur þjónað okkur hingað til var barn sín tíma, en nú er kominn tími til að gera á henni andlitslyftingu. Mun ég senda á félagsmenn fjölpóst þegar stundin rennur upp.
Kveðja,
Borghildur Ingvarsdóttir
Formaður Íslenska bútasaumsfélagsins
Recent Comments